Hvað segir lýðurinn??? Er þetta í lagi ég er ekki búin að blogga
í nær fjóra mánuði eða síðan ég leit hinn eina sanna
TORRES augum og ef satt
skal segja þá hefur sko margt drifið á daga mína á þessum
tíma, alveg hellingur, alveg ótrúlega mikill hellingur.
Fyrir þá sem ekki vita en ég vænti samt þess að flestir sem e-ð
skoða þessa síðu viti að ég er komin í Sundfélagið Ægir. Svo er ég
líka búin að skreppa til Ammeríku að versla með mömmu og Kristrúnu.
Og ef rétt er farið með þá skemmti ég mér alveg konunglega og
verslaði af mér rassinn og mig svíður ennþá... Nei djók...
En
allavega þá er bara all gott að frétta af mér og mínum er bara að
æfa á fullu og skólinn er að gera mig geðveika en ég gef mér samt
alltaf tíma til að gera e-ð skemmtilegt og ég finn að sumir eru
alveg övundsjúkir útaf því,
nei segji svona en nefni
engin nöfn...
Svo styttist bara óðum í ÍM 25 og ég get bara ekki beðið er
orðin frekar spennt fyrir þessu öllu saman keppa á stórmóti með
nýju félagi en þegar ég keppti fyrst sem Ægiringur fór smá
kjánahrollur um mig... "Og á fjórðu braut Ásdís Arna Björnsdóttir
Ægi" en það er bara gaman...
En meira af þessari Ammeríkuferð þá fór ég nánar tiltekið til
Boston sem er reyndar alveg mögnuð borg og sérstaklega gaman að
versla í við vorum þarna í fjórar nætur en við vorum ekki bara að
versla, við kíktum á sædýrasafn sem var frekar gaman, litlar
mörgæsir, hákarlar og ekki má gleyma risa-sæ-skjaldbökunni sem var
all svakaleg. Svo kíktum við líka á Cheers eða Staupastein sem var
alveg nett fynndið... Where everybody knows your name
dam-dam-dam!!!
En já svo ætlum við Ólöf að skella okkur á hann Magna okkar og
húsbandið ásamt öðrum Rock star stjörnum 30. nóv nákvæmlega. Og ef
þessir tónleikar verða e-ð líkir ballinu sem var á Brodway með
Magna og Dilönu hérna um daginn þá bara... hef ekki orð til að lýsa
þessu því það var svo MAGNAÐ á Magna og Dilönu...HEHE 
En held að þetta sé komið gott í bili...
Later Ásdís Arna the one and only !!!
Og svo hérna ein sæt af okkur Ólöfu hérna!!!
